Fotbolti.net
03.09.26 - 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Íþróttastjóri Mónakó: Vil ekki fara í stríð við Everton og Chelsea

Folarin Balogun

Folarin Balogun

Canon

Mynd: EPA

Það var svakaleg dramatík milli Mónakó, Everton og Chelsea á lokadegi félagaskiptagluggans á þriðjudaginn.
Balogun hætti við að ganga til liðs við Everton
TENGT EFNI

Balogun hætti við að ganga til liðs við Everton

Mónakó þarf að selja leikmenn og framherjinn Folarin Balogun var nálægt því að ganga til liðs við Everton og miðjumaðurinn Lamine Camara var við það að ganga til liðs við Chelsea.

Mónakó ætlaði ekki að selja Camara og hann var búinn að samþykkja að vera áfram hjá félaginu. Það komu upp vandræði í læknisskoðuninni hjá Balogun og þá samþykkti félagið að selja Camara.

Everton kom hins vegar aftur að borðinu og Mónakó kallaði Camara aftur til sín. En Balogun var ekki sáttur með meðferðina sem hann fékk hjá Everton og hætti við.

„Við virðum ákvörðunina hans. „Við fundum lausnir, véfengdum læknisfræðilegt mat og unnum úr vandamálunum. Ég vil ekki fara í stríð við Chelsea eða Everton. Hlutverk mitt er að vernda Mónakó og starfa í þágu félagsins. Það er það sem ég hef gert síðan ég kom," sagði Thiago Scuro, íþróttastjóri Mónakó.

Scuro útilokaði ekki að félagið gæti selt aðra leikmenn til landa þar sem félagaskiptaglugginn er enn opinn.
Lamine Camara

Lamine Camara

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.