Fotbolti.net
03.09.26 - 10:31
Kári Snorrason

Tíu eftirtektaverðustu treyjurnar á treyjudögum

Tíu eftirtektaverðustu treyjurnar á treyjudögum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Í nýafstaðinni 21. umferð Bestu deildarinnar gengu leikmenn, starfsteymi og dómarar allra liða inn á völlinn í uppáhaldstreyju sinni.

Markmiðið var að vekja athygli á málefnum barna með krabbamein og sýna þeim stuðning.

Margar glæsilegar og eftirtektarverðar treyjur litu dagsins ljós og valdi dómnefnd Fótbolta.net þær tíu sem þóttu skara fram úr.
<b>Daði Guðmundsson - Fram:</b> Framkvæmdastjóri fótboltadeildar Fram klæddist glæsilegri treyju frá gullaldarskeiði liðsins.

Daði Guðmundsson - Fram: Framkvæmdastjóri fótboltadeildar Fram klæddist glæsilegri treyju frá gullaldarskeiði liðsins.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<b>Hallgrímur Jónasson - Völsungur:</b> Annar þjálfari KA-manna klæddist treyju frá uppeldisfélaginu sem var einkar hugguleg.

Hallgrímur Jónasson - Völsungur: Annar þjálfari KA-manna klæddist treyju frá uppeldisfélaginu sem var einkar hugguleg.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<b>Ívar Orri Kristjánsson - Preston:</b> Ívar Orri dómari lét sig ekki vanta í gleðinni og klæddist Preston treyju. Liðið lék í treyjunni upp úr aldamótum og var hún merkt engum öðrum en Þórði Guðjónssyni. Pétur Guðmundsson fær líka tilnefningu en hann var í skrúðugri treyju frá Gana.

Ívar Orri Kristjánsson - Preston: Ívar Orri dómari lét sig ekki vanta í gleðinni og klæddist Preston treyju. Liðið lék í treyjunni upp úr aldamótum og var hún merkt engum öðrum en Þórði Guðjónssyni. Pétur Guðmundsson fær líka tilnefningu en hann var í skrúðugri treyju frá Gana.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<b>Hrannar Snær Magnússon - Leiftur:</b> Það var skemmtilegt að sjá Ólafsfirðinginn rífa upp gamla og góða Leifturstreyju og tók hann sig vel út í henni.

Hrannar Snær Magnússon - Leiftur: Það var skemmtilegt að sjá Ólafsfirðinginn rífa upp gamla og góða Leifturstreyju og tók hann sig vel út í henni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<b>Sindri Snær Magnússon - ÍR:</b> ÍR-ingurinn Sindri fór í snyrtilega varatreyju ÍR sem liðið keppti í upp úr aldamótum. Helgi Mikael dómari fór aðra leið og klæddist NFL treyju.

Sindri Snær Magnússon - ÍR: ÍR-ingurinn Sindri fór í snyrtilega varatreyju ÍR sem liðið keppti í upp úr aldamótum. Helgi Mikael dómari fór aðra leið og klæddist NFL treyju.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

<b>Simon Tibbling - Leicester:</b> Svíinn skartaði treyju sem var notuð í viðureign Randers og Leicester í 32-liða úrslitum Sambandsdeildarinnar árið 2022. Tibbling var þá leikmaður Randers og kom inn á í báðum leikjunum en einvíginu lauk með 7-2 sigri enska liðsins.

Simon Tibbling - Leicester: Svíinn skartaði treyju sem var notuð í viðureign Randers og Leicester í 32-liða úrslitum Sambandsdeildarinnar árið 2022. Tibbling var þá leikmaður Randers og kom inn á í báðum leikjunum en einvíginu lauk með 7-2 sigri enska liðsins.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<b>Helgi Guðjónsson - UMFR:</b> Reykdælingurinn Helgi klæddist treyju frá Ungmennafélagi Reykdæla fyrir stórleikinn á þriðjudag.

Helgi Guðjónsson - UMFR: Reykdælingurinn Helgi klæddist treyju frá Ungmennafélagi Reykdæla fyrir stórleikinn á þriðjudag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<b>Hallgrímur Mar og Hrannar Björn Steingrímssynir - Völsungur og Man Utd:</b> Bræðurnir báðir í gömlum og góðum treyjum. Hallgrímur í alhvítri Völsungstreyju en Hrannar í útitreyju Man Utd frá tíunda áratugnum merkt engum öðrum en meistara David Beckham.

Hallgrímur Mar og Hrannar Björn Steingrímssynir - Völsungur og Man Utd: Bræðurnir báðir í gömlum og góðum treyjum. Hallgrímur í alhvítri Völsungstreyju en Hrannar í útitreyju Man Utd frá tíunda áratugnum merkt engum öðrum en meistara David Beckham.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<b>Oliver Stefánsson og Jóhannes Kristinn Bjarnason - Stoke tvenna:</b> Liðsfélagarnir og Skagamennirnir tveir klæddust báðir treyjum af feðrum sínum; þeim Bjarna Guðjónssyni og Stefáni Þórðarsyni. Skemmtilegt í meira lagi! Þá var Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari FH, í eigin treyju frá Real Betis.

Oliver Stefánsson og Jóhannes Kristinn Bjarnason - Stoke tvenna: Liðsfélagarnir og Skagamennirnir tveir klæddust báðir treyjum af feðrum sínum; þeim Bjarna Guðjónssyni og Stefáni Þórðarsyni. Skemmtilegt í meira lagi! Þá var Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari FH, í eigin treyju frá Real Betis.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

<b>Gylfi Þór Sigurðsson - Everton:</b> Sú treyja sem hefur eflaust vakið hvað mesta athygli. Merkt Rooney #10 aftan á og árituð í þokkabót. Gylfi og Rooney léku saman hjá Everton.

Gylfi Þór Sigurðsson - Everton: Sú treyja sem hefur eflaust vakið hvað mesta athygli. Merkt Rooney #10 aftan á og árituð í þokkabót. Gylfi og Rooney léku saman hjá Everton.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.