Fotbolti.net
03.09.26 - 11:07
Kári Snorrason

Byrjaði tólf ára og lék 200. leikinn

Spilaði sinn 200. deildarleik á mánudag.

Spilaði sinn 200. deildarleik á mánudag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Alex Þór Hauksson, miðjumaður Stjörnunnar, lék sinn 200. deildaleik á ferlinum þegar Garðabæjarliðið 2-0 sigur á Breiðabliki á mánudag.

Víðir Sigurðsson vekur athygli á áfanga leikmannsins í uppgjöri á 21. umferð Bestu deildarinnar.

Þar vekur Víðir jafnframt athygli á að Alex varð líklega yngsti meistaraflokksmaður landsins þegar hann lék einn leik tólf ára gamall með Álftanesi í 3. deild árið 2012.
Víðir Sig: Hverjir mætast í lokin? - KA eða Þór á heimavelli? - Áfangar hjá Alex og Óla
TENGT EFNI

Víðir Sig: Hverjir mætast í lokin? - KA eða Þór á heimavelli? - Áfangar hjá Alex og Óla

Alex hefur leikið tíu deildarleiki með Stjörnunni í ár en einungis byrjað fjóra þeirra. Hann hefur verið að glíma við þrálát meiðsli á tímabilinu sem hafa haldið honum fjarri vellinum.

Alex hefur leikið með Stjörnunni í efstu deild frá 2017, ef undanskilin eru þrjú ár með Öster í Svíþjóð og eitt með KR.

Hann hefur nú leikið 129 leiki í Bestu deildinni, 105 þeirra með Stjörnunni og 24 með KR, 70 leiki í sænsku B-deildinni, og svo leikinn áðurnefnda með Álftanesi.
Kemur inn á tólf ára gamall fyrir Álftanes.

Kemur inn á tólf ára gamall fyrir Álftanes.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Valur Böðvarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.