03.10.16 - 11:17
Elvar Geir Magnússon
Bob Bradley nýr stjóri Gylfa (Staðfest)
Guidolin rekinn á afmælisdeginum sínum

Bob Bradley er fyrsti Bandaríkjamaðurinn til að stýra liði í ensku úrvalsdeildinni.

Mynd: Getty Images

Francesco Guidolin hefur verið rekinn sem stjóri Swansea og Bandaríkjamaðurinn Bob Bradley ráðinn í hans stað. Félagið hefur staðfest þetta.
Swansea hefur farið illa af stað í ensku úrvalsdeildinni og varð þolinmæðin á þrotum eftir tap gegn Liverpool á laugardaginn.

Bradley er fyrrum landsliðsþjálfari Bandaríkjanna en hann fundaði með Huw Jenkins, stjórnarformanni Swansea, í síðustu viku. Bradley hefur verið við stjórnvölinn hjá Le Havre í frönsku B-deildinni.
Jenkins heillaðist af Bradley á fundinum en hann er talinn sterkur karakter með leiðtogahæfileika auk þess sem hann býr yfir mikilli reynslu.
Ryan Giggs kom einnig til greina en stjórn Swansea ákvað að veðja á reynsluna.
Swansea er í 17. sæti ensku úrvalsdeildarinnar, aðeins markatölunni frá fallsæti. Það var umdeilt þegar Guidolin, sem á 61 árs afmæli í dag, var ráðinn stjóri Swansea til frambúðar. Hann tók við í janúar til að halda Swansea í deildinni og þrátt fyrir að hafa náð því markmiði voru efasemdir innan félagsins um hvort hann væri rétti maðurinn.
Fyrsti leikur Bradley við stjórnvölinn verður gegn Arsenal þarnæsta laugardag.
Gylfi Þór Sigurðsson er besti maður Swansea en Gylfi er mættur til Íslands til undirbúnings fyrir komandi landsleiki, gegn Finnum á fimmtudag og Tyrklandi á sunnudag.

We can confirm the club has parted company with Francesco Guidolin, who will be replaced by Bob Bradley. pic.twitter.com/ezFbt1bxAQ
— Swansea City AFC (@SwansOfficial) October 3, 2016