Fotbolti.net
03.10.16 - 08:30
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Roberto Di Matteo rekinn frá Aston Villa (Staðfest)

Steve Clarke tekur við þar til nýr stjóri finnst

Roberto Di Matteo rekinn frá Aston Villa (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Ítalinn Roberto Di Matteo hefur verið rekinn úr stjórastól Aston Villa eftir slæma byrjun á fyrsta tímabili félagsins í Championship deildinni.

Villa tapaði fyrir Preston North End um helgina og er aðeins búið að vinna einn af fyrstu ellefu leikjum tímabilsins. Norwich og Newcastle, sem féllu með Villa, eru bæði í toppbaráttunni.
„Félagið er í 19. sæti deildarinnar og er það ekki viðunandi árangur. Félagið þakkar Roberto fyrir störf sín og óskar honum góðs gengis í framtíðinni,\" stendur í yfirlýsingu á vefsíðu Aston Villa.

„Steve Clarke tekur við liðinu þar til nýr stjóri finnst. Félagið mun ekki tjá sig frekar um málið.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.