Fotbolti.net
03.10.17 - 16:19
Hafliði Breiðfjörð

Milos farinn frá Blikum: Áhugi á mér í Skandinavíu og Asíu

Milos Milojevic á hliðarlínunni hjá Breiðabliki í sumar.

Milos Milojevic á hliðarlínunni hjá Breiðabliki í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Skilnaðurinn er í góðu og ekkert vandmál sem kom upp. Við töldum þetta best fyrir báða aðila á þessum tímapunkti,\" sagði Milos Miojevic við Fótbolta.net í dag en fyrr í dag var tilkynnt um að hann sé hættur þjálfun Breiðabliks sem hann tók við í vor.
„Ég geng stoltur frá verkefninu og hugsa að þeir séu líka ánægðir með það sem við erum búnir að gera,\" bætti hann við.

Milos tók við liði Breiðabliks 22. maí síðastliðinn en Arnari Grétarssyni hafði verði vikið úr starfi eftir tvær umferðir og Sigurður Víðisson stýrði þeim tímabundið þar til Milos kom.

„Öll verkefni í fótbolta eru erfið en ég þekkti þennan hóp að utan frá og hafði enga trú á öðru en ég myndi gera góða hluti. Við hefðum getað gert betur með smá heppni en spilamennskan var engu að síður mjög góð.\"

Ekki er ljóst hvað tekur við hjá Milos en hann stefnir ekki á að starfa hér á landi á næstu leiktíð.

„Eins og staðan er núna býst ég ekki við að vera á Íslandi næstkomandi ár. Ég fer samt alls ekki með slæmar minningar frá Íslandi en ég hef verið hérna í tíu ár og langar að breyta til og prófa eitthvað nýtt,\" sagði hann en hvað tekur við?

„Á þessum tímapunkti get ég ekki sagt meira en það er áhugi á mér í Skandinavíu sem ég er að meta. Svo eru lið frá Asíu sem er spennandi af peningalegum ástæðum en ekki endilega fótboltalegum. Skandinavía yrði alltaf frá 1. janúar en Asía gæti komið fyrr. Ég þarf að sjá bara hvað er hægt að gera. \"

Sjá einnig:
Milos hættur með Breiðablik (Staðfest)
,,Svo eru lið frá Asíu sem er spennandi af peningalegum ástæðum en ekki endilega fótboltalegum.\'\'

,,Svo eru lið frá Asíu sem er spennandi af peningalegum ástæðum en ekki endilega fótboltalegum.\'\'

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.