Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 03. október 2019 12:55
Elvar Geir Magnússon
Þórhallur rekinn frá Þrótti (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þórhallur Siggeirsson hefur verið rekinn frá Þrótti en þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Þórhallur stýrði liðinu í eitt tímabil en Þróttarar rétt náðu að bjarga sér frá falli úr Inkasso-deildinni.

Tilkynning Þróttar:

Knattspyrnudeild Þróttar hefur tekið ákvörðun um að finna nýjan aðalþjálfara fyrir meistaraflokk karla hjá félaginu.

Knattspyrnudeildin þakkar fráfarandi þjálfurum, þeim Þórhalli Siggeirssyni og Halldóri Geir Heiðarssyni, fyrir samstarfið, góða viðkynningu og framlag þeirra til fótboltans í Þrótti.

Um leið óskar félagið þeim velfarnaðar í framtíðinni.

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner