Fotbolti.net
03.10.26 - 15:44
Kári Snorrason

Arnar útskýrir byrjunarliðið - „Við treystum hópnum“

Gerir sex breytingar frá síðasta leik.

Gerir sex breytingar frá síðasta leik.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
Viðureign Íslands og Búlgaríu í C-deild Þjóðadeildarinnar hefst klukkan 16:00 á Laugardalsvelli. Ísland er á toppi riðilsins með fjögur stig en Búlgaría á botninum með eitt stig.

Fyrir skömmu opinberaði Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari byrjunarlið Íslands og gerir hann sex breytingar frá 0-3 sigri liðsins gegn Lúxemborg síðastliðinn þriðjudag.

Í viðtali við Sýn Sport útskýrir Arnar valið og segir hann mikið leikjaálag spila þar inn og vill hann halda háu orkustigi með ferskum fótum.
Byrjunarlið Íslands - Arnar gerir sex breytingar
TENGT EFNI

Byrjunarlið Íslands - Arnar gerir sex breytingar

Lestu um leikinn: Ísland 0 - 0 Búlgaría
„Þetta er leikur númer þrjú í þessum langa glugga. Við viljum fá ferskar lappir inn og rótera liðinu aðeins til að halda sama orkustigi aðeins og gegn Lúxemborg. Það er líka korter í næsta leik gegn Eistlandi. Við höfum talað um það síðastliðið ár að stækka hópinn, ég er svolítið að reyna færa sönnun fyrir því að við treystum þessum hópi til að gera gott verk í dag,“ segir Arnar.

Varnarlína Íslands er gjörbreytt frá leiknum gegn Lúxemborg. Mikael Egill Ellertsson er eini í varnarlínunni sem byrjaði á þriðjudaginn en þá lék hann á hægri kanti.

„Það eru einhverjar upplýsingar sem almenningur veit kanski ekki um ástand leikmanna - hverjir eru klárir og hverjir ekki. Þetta er bland í poka. Áhyggjur manna um t.d. Mikael Neville í hægri bakverðinum ætti ekki að vera miklar, hann er búinn að spila kantbakvörð með sínu félagsliði. Það er meira varnarfærslur þar sem menn þurfa að stilla saman strengi sína,“ segir Arnar og heldur áfram.

„Andri Fannar spilar á háu stigi í Tyrklandi og svo er Hákon í sinni stöðu hjá Lille. Jón Dagur fær loksins að spila sína stöðu, vinstri kant hjá mér og síðan þekkjum við öll hæfileika Arnórs,“ segir Arnar að lokum.
Andri Lucas þarf að sætta sig við bekkjarsetu.

Andri Lucas þarf að sætta sig við bekkjarsetu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Aron Einar spilar sinn 111. landsleik.

Aron Einar spilar sinn 111. landsleik.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.