03.10.26 - 16:13
Brynjar Ingi Erluson
Unnu Asíuleikana fjórða sinn í röð og sleppa við herskyldu

Suður-Kórea vann Asíuleikana í fjórða sinn í röð

Mynd: EPA

Suður-Kórea vann Asíuleikana í fjórða sinn í röð

Mynd: EPA
Suður-Kórea vann Asíuleikana fjórða sinn í röð eftir 1-0 sigur á Japan í úrslitaleiknum.
Lið Suður-Kóreu var að mestu skipað leikmönnum U23 ára landsliðsins en Japan tefldi fram U21 árs liði. Þar voru meðal annars leikmenn sem unnu Asíubikar U23 ára landsliða í sumar.
Eom Jisung, leikmaður Swansea, skoraði sigurmark Suður-Kóreu eftir undirbúning Yang Min-Hyeok sem er á mála hjá Tottenham.
Sigurinn tryggir leikmönnum Suður-Kóreu undanþágu frá hefðbundinni herskyldu og þeir þurfa því ekki að taka langt hlé frá atvinnumennsku.
Margir þeirra leika erlendis, þar á meðal þeir tveir sem bjuggu til sigurmarkið, auk leikmanna á mála hjá Stoke og Celtic.

SCENES.
— Joel Kim (@KNTFootball) October 3, 2026
TEARS OF JOY, CATHARTIC RELIEF SPILLING OVER AS KOREA WINS GOLD AT THE ASIAN GAMES, BECOME 4-TIME CHAMPIONS. ????????????????
ANOTHER GENERATION WINS MILITARY EXEMPTION.
BRAVO LADS ???????????????????????????????????????????????????????????????????????? pic.twitter.com/dh8KLc9HnB