Fotbolti.net
03.10.26 - 15:33
Brynjar Ingi Erluson

Hádramatík í grannaslag - Góður sigur hjá Kristianstad

Hafrún Rakel spilaði í mjög svo sætum sigri á nágrönnunum

Hafrún Rakel spilaði í mjög svo sætum sigri á nágrönnunum

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Nokkrar íslenskar fótboltakonur voru í eldlínunni víðs vegar um Evrópu í dag.
Vigdís Lilja Kristjánsdóttir var í byrjunarliði Anderlecht sem tapaði 3-1 fyrir Club Brugge í toppslag belgísku úrvalsdeildarinnar. Brugge fór þar með upp fyrir Íslendingaliðið og á toppinn með 13 stig en Anderlecht er í öðru sæti með 12 stig.

Alexandra Jóhannsdóttir, Guðný Árnadóttir og Elísa Lana Sigurjónsdóttir voru allar í byrjunarliði Kristianstad sem vann 2-0 sigur á Växjö í sænsku úrvalsdeildinni. Kristianstad er þar með komið upp í fimmta sæti með 32 stig.

Eyrún Embla Hjartardóttir var í byrjunarliði varaliðs Häcken sem tapaði 3-2 fyrir Örebro í sænsku B-deildinni. Häcken er í neðsta sæti með átta stig eftir 21 leik.

Íris Ómarsdóttir og Katla Tryggvadóttir voru báðar í byrjunarliði Fiorentina sem vann 2-0 sigur á Sassuolo í annarri umferð ítölsku deildarinnar. Þetta voru fyrstu stig Flórensarliðsins á tímabilinu.

Hafrún Rakel Halldórsdóttir kom inn af bekknum hjá Bröndby sem vann dramatískan 2-1 sigur á nágrönnum sínum og erkifjendum í
FCK.

FCK komst yfir á 83. mínútu og taldi sig vera að vinna frækinn sigur, en Bröndby skoraði tvö á lokamínútunum og tryggði sigurinn.

Sunneva Sif Sigurvinsdóttir var ekki með FCK sem er í næstneðsta sæti með sex stig en Bröndby er í þriðja sæti með 20 stig.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.