Fotbolti.net
03.11.16 - 17:14
Elvar Geir Magnússon

Arnór Sveinn orðinn leikmaður KR (Staðfest)

Skeiðarinn er mættur í Vesturbæ Reykjavíkur.

Skeiðarinn er mættur í Vesturbæ Reykjavíkur.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Bakvörðurinn Arnór Sveinn Aðalsteinsson var kynntur sem nýr leikmaður KR á fréttamannafundi í Frostaskjólinu rétt í þessu. Hann hefur skrifað undir þriggja ára samning við Vesturbæjarliðið sem hafnaði í þriðja sæti Pepsi-deildarinnar í sumar.

Hann er fyrsti leikmaðurinn sem Willum Þór Þórsson fær til KR en fyrr í vikunni var staðfest að hann verður áfram þjálfari liðsins.
Arnór var fyrirliði Breiðabliks en missti sæti sitt í byrjunarliðinu á liðnu sumri.

Arnór er þrítugur en hann hefur leikið með liðinu allan sinn feril með Blikum fyrir utan árin 2011 til 2013 þegar hann var hjá Hönefoss í Noregi. Hann varð bikar­meist­ari með Breiðabliki 2009 og Íslands­meist­ari 2010

Samtals hefur Arnór skorað átta mörk í 178 deildar og bikarleikjum með Blikum á ferlinum. Hann á einnig 12 A-landsleiki að baki fyrir Íslands hönd.

Viðtal við Arnór Svein kemur inn á Fótbolta.net á eftir
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.