03.11.16 - 23:11
Jóhann Ingi Hafþórsson
Ásgeir Marteins aftur í HK (Staðfest)
Guðmundur Þór framlengdi

Ásgeir ásamt Dean Martin og Jóhannesi Karli Guðjónssyni, þjálfarateymi HK.

Mynd: HK

Ásgeir Marteinsson er kominn til HK á nýjan leik en hann hefur á undanförnum árum spilað með ÍA og Fram.
Hann spilaði stóra rullu í liði HK er þeir komust upp úr 2. deild og upp í 1. deild árið 2013 en hann fór til Fram, sem þá var í Pepsi-deildinni, eftir þá leiktíð.
Ásgeir var eitt ár í Fram en félagið féll þá úr deildinni og fór hann í kjölfarið til ÍA þar sem hann hefur verið undanfarin tvö tímabil.
Kantmaðurinn hefur skorað 17 mörk í 78 keppnisleikjum hér á landi og kemur til með að styrkja HK-liðið mjög.
Guðmundur Þór Júlíusson hefur svo skrifað undir nýjan tveggja ára samning við HK en hann hefur spilað í hjarta varnarinnar síðustu tvö tímabil eftir að hafa komið frá fjölni.