03.11.16 - 19:42
Jóhann Ingi Hafþórsson
Jesse Shugg í Fylki (Staðfest)

Jesse Shugg

Mynd: Fylkir

Jesse Shugg

Mynd: Fylkir

Jesse Shugg, framherji sem áður spilaði með Tindastól er komin í raðir Fylkis og spilar hún í Árbænum í Pepsi-deild kvenna á næsta tímabili.
Shugg er fædd árið 1992 og skoraði hún 11 mörk í sjö leikjum fyrir Tindastól í 1. deildinni í sumar.
Hún er fædd í Kanada en hún er með tvöfalt ríkisfang og á hún átta landsleiki með Filipseyjum og hefur hún skorað í þeim þrjú mörk.
„Fylkir er búið að vera í efstu deild í nokkur ár og þeir sem ég þekki á Íslandi töluðu mjög vel um félagið og mæltu með þessu fyrir mig. Eins
heyrði ég að Nonni(Jón Aðalsteinn) sé mjög góður þjálfari og ég vona að það verði góð reynsla að vinna með honum og eins liðinu. Mitt markmið er gera eins vel og ég get og vonandi náum við í Fylki að færa okkur ofar í töflunni á næsta ári,\" sagði Shugg
„Það er frábært að fá Jesse til okkar. Ég var búinn að heyra svo margt gott um hana og því vildum við reyna að sannfæra hana um að koma í Árbæinn. Við erum ennþá á fullri ferð að vinna í að styrkja okkur. Þetta verður vonandi flott blanda af góðum Fylkisstelpum og leikmönnum sem vilja koma í Árbæinn og taka slaginn með okkur,\" segir Jón Aðalsteinn Kristjánsson þjálfari kvennaliðs Fylkis.