Fotbolti.net
03.11.16 - 15:01
Magnús Már Einarsson

Jósef í Stjörnuna (Staðfest)

Jósef er farinn frá Grindavík í Stjörnuna.

Jósef er farinn frá Grindavík í Stjörnuna.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stjarnan hefur fengið vinstri bakvörðinn Jósef Kristinn Jósefsson í sínar raðir frá Grindavík. Jósef skrifaði undir þriggja ára samning við Stjörnuna.

Jósef var fyrirliði Grindvíkinga þegar liðið komst upp úr Inkasso-deildinni í sumar. Samningur hans rennur út um áramótin og því gat hann samið við annað félag.
„Mér fannst ég þurfa að breyta til og mér fannst þetta vera rétti tímapunkturinn. Ég var búinn að komast upp með liðinu og fannst ég geta skilið við Grindavík sáttur,\" sagði Jósef við Fótbolta.net í gær.

Jósef hefur verið lykilmaður í liði Grindavíkur í áraraðir en í sumar var hann valinn í lið ársins í Inkasso-deildinni og var einungis einu atkvæði frá því að fá fullt hús í þessu vali fyrirliða og þjálfara í deildinni.

Þessi 27 ára gamli leikmaður hefur leikið með Grindavík allan sinn feril fyrir utan hluta árs 2011 þegar hann var á mála hjá Chernomorets Burgas í Búlgaríu.

Jósef er þriðji leikmaðurinn sem Stjarnan fær í sínar raðir eftir tímabilið. Áður hafði markvörðurinn Haraldur Björnsson samið við liðið sem og Óttar Bjarni Guðmundsson, varnarmaður úr Leikni.

Jósef Kristinn Jósefsson er kominn í blátt! #InnMedBoltann pic.twitter.com/CiOFd4g4uy

— Stjarnan FC (@FCStjarnan) November 3, 2016

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.