03.11.16 - 07:00
Jóhann Ingi Hafþórsson
Þjálfari Manchester United tekur við Wigan (Staðfest)

Warren Joyce

Mynd: Getty Images

Warren Joyce

Mynd: Getty Images
Warren Joyce hefur tekið við þjálfun Wigan Athletic.
Joyce kemur til Wigan frá Manchester United en þar þjálfaði hann U-21 árs og U-23 ára lið félagsins og hafði gert síðustu sex ár.
Hann tekur við Wigan af Gary Caldwell sem rekinn var á dögunum en Caldwell stýrði Wigan upp úr C-deildinni.
Leikmenn eins og Paul Pogba, Ravel Morrison, Jesse Lingard, Marcus Rashford og Adnan Januzaj komu í gegnum unglingastarfið er Joyce þjálfaði þar.
Talið er að Joyce hafi verið ósáttur hjá Manchester United og m.a vegna þess að Bastian Schweinsteiger fékk ekki að spila í liðum Joyce.
Hann skrifar undir þriggja og hálfs árs samning við Wigan en félagið er í fallbaráttu í Championship deildinni.