03.11.17 - 11:30
Magnús Már Einarsson
Andri Þór í ÍR (Staðfest)

Andri í leik með Gróttu í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

ÍR hefur fengið varnarmanninn Andra Þór Magnússon til liðs við sig frá Gróttu.
„Andri Þór Magnússon hefur skrifað undir tveggja ára samning við félagið og mun því fylgja Andreu systur sinni yfir í hvíta og bláa búninginn fallega,\" segir á Facebook síðu ÍR.

„Við bjóðum hann velkominn í okkar flotta hóp og væntum mikils af hans framlagi fyrir félagið!\"
Hinn 29 ára gamli Andri er uppalinn hjá Fjarðabyggð og hefur leikið þar allan sinn feril fyrir utan nýliðið tímabil þar sem hann lék með Gróttu. Andri var fastamaður í vörn Gróttu sem féll úr Inkasso-deildinni.
Andri á að baki yfir 250 meistaraflokksleiki en hann spilaði í þrjú ár undir stjórn Brynjars Þórs Gestssonar hjá Fjarðabyggð. Brynjar tók við þjálfun ÍR af Arnari Þór Valssyni í haust. ÍR endaði í 10. sæti í Inkasso-deildinni á nýliðnu tímabili.