03.11.17 - 17:55
Magnús Már Einarsson
Heimir Guðjóns tekinn við HB (Staðfest)

Heimir Guðjónsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Heimir Guðjónsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Heimir Guðjónsson hefur verið ráðinn þjálfari HB í Færeyjum en þetta staðfesti hann í samtali við Fótbolta.net nú rétt í þessu.
Heimir gerði tveggja ára samning með uppsagnarákvæði af beggja hálfu eftir næsta tímabil.
Hinn 48 ára gamli Heimir var rekinn frá FH fyrr í þessum mánuði eftir farsælan tíu ára feril sem þjálfari og Ólafur Kristjánsson ráðinn í hans starf.
HB er sigursælasta lið Færeyja og hefur orðið færeyskur meistari 22 sinnum, síðast árið 2013. Kristján Guðmundsson stýrði liðinu stærstan hluta tímabilsins 2010 en þá varð það meistari. HB stóð ekki undir væntingum á liðnu tímabili og hafnaði í fimmta sæti.
„Þetta er gott tækifæri. HB er mjög flottur klúbbur. Menn voru ekki nógu ánægðir með hvernig hlutirnir gengu í sumar. Menn vilja gera betur og það er heiður að fá að taka þátt í því,\" sagði Heimir við Fótbolta.net í kvöld.
Á meðal leikmanna HB er Símun Samuelsen sem spilaði með Keflavík við góðan orðstír frá 2005 til 2007.