Fotbolti.net
03.11.17 - 10:30
Magnús Már Einarsson

Páll Árnason tekur við Fjölni (Staðfest)

Kolbeinn Kristinsson og Páll Árnason eftir undirskrift.

Kolbeinn Kristinsson og Páll Árnason eftir undirskrift.

Canon

Mynd: Fjölnir

Kvennaboltinn
Páll Árnason hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks kvenna hjá Fjölni. Fjölnir fór upp úr 2. deildinni í sumar og leikur í 1. deildinni á næsta ári.

Gunnar Már Guðmundsson hætti sem þjálfari Fjölnis á dögunum þegar hann var ráðinn aðstoðarþjálfari hjá meistaraflokki karla í Pepsi-deildinni.
Páll, sem er 31 árs, hefur lokið UEFA-A þjálfaragráðu og MEd og BSc gráðum í Íþróttafræði frá Háskólanum í Reykjavík. Samningurinn er til næstu þriggja ára en samhliða því að þjálfa meistaraflokk kvenna mun Páll halda áfram að þróa unga og efnilega leikmenn Fjölnis í 3. flokki kvenna.

„Knattspyrnudeildin fagnar þessari ráðningu en með henni er verið að leggja áherslu á að búa til umhverfi þar sem metnaðarfullir leikmenn geta þróað sinn leik áfram ásamt því að byggja á heimamönnum. Það er mikill uppgangur og meðbyr með kvennaknattspyrnunni hjá Fjölni um þessar mundir en meistaraflokkur kvenna tryggði sér sæti í 1. deild á síðasta tímabili,\" segir í yfirlýsingu frá Fjölni.

„Það er því ljóst að framundan eru bjartir tímar í Grafarvoginum. Þá viljum við jafnframt nota tækifærið og þakka þeim Gunnari Má og Gunnari Val, fyrrum þjálfurum liðsins, fyrir vel unnin störf sl. tvö ár.\"

Við tilkynnum með stolti að Páll Árnason @PalliArna hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks kvenna! ⚽️#FélagiðOkkar pic.twitter.com/6a9B5El1Ck

— Fjölnir FC (@Fjolnir_FC) November 3, 2017

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.