Fotbolti.net
03.11.17 - 17:30
Magnús Már Einarsson

Regielly til Hauka (Staðfest) - Dagrún og Katrín framlengja

Dagrún Birta Karlsdóttir fagnar marki.

Dagrún Birta Karlsdóttir fagnar marki.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Knattspyrnudeild Hauka skrifaði í gærkvöldi undir samninga við þær Dagrúnu Birtu Karlsdóttur og Katrínu Hönnu Hauksdóttur sem eru báðar uppaldar hjá félaginu og Regielly Oliveira Rodrigues sem kemur frá Sindra.
Regielly er 17 ára gömul og á að baki 26 leiki með meistaraflokki Sindra en hún spilar sem miðjumaður.

Dagrún Birta er 18 ára gömul og á að baki 17 leiki með meistaraflokkum Hauka og Augnabliks en hún spilar jafnan sem varnarmaður.

Katrín Hanna er 17 ára gömul og hefur hún spilað 22 leiki með Haukum og Álftanesi í meistaraflokki. Katrín, sem er markvörður, á að baki 8 landsleiki með U17.

„Það er mikið ánægjuefni að Dagrún og Katrín skuli skuldbinda sig því verkefni sem framundan er hjá okkur í Haukum. Báðar eru þær efnilegar og hluti af framtíðaráætlunum félagsins. Dagrún er sterkur varnarmaður með góðan leikskilning en hún getur einnig leyst fleiri stöður á vellinum. Katrín er efnilegur markvörður með góða tækni. Regielly eða Leli eins og hún er kölluð er góður liðsstyrkur og við fögnum komu hennar. Leli er tæknilega góður leikmaður með gott auga fyrir spili,“ segir Jakob Leó Bjarnason, þjálfari meistaraflokks kvenna.

Knattspyrnudeild Hauka fagnar endurnýjun samninga við þær Dagrúnu og Katrínu og býður Leli innilega velkomna í Hauka-fjölskylduna.
Katrín Hanna Hauksdóttir.

Katrín Hanna Hauksdóttir.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.