03.11.18 - 19:47
Ívan Guðjón Baldursson
Guðjón Þórðar tekinn við NSI Rúnavík (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Guðjón Þórðarson er tekinn við NSÍ Runavík í færeyska boltanum og er hann þar með annar íslenski þjálfarinn til að taka við félagi þar í landi á nákvæmlega einu ári. Heimir Guðjónsson tók við HB Þórshöfn 3. nóvember 2017.
Gauja Þórðar þarf varla að kynna fyrir lesendum, en hann er 63 ára Skagamaður sem hefur meðal annars stýrt íslenska landsliðinu, Stoke City og Barnsley á ferlinum.
NSÍ er ekki eina færeyska félagið sem hafði áhuga á Gauja en liðið endaði í öðru sæti deildarinnar í sumar, 18 stigum eftir HB Þórshöfn.
Það voru ekki margir sem bjuggust við að Heimir myndi gera HB að meisturum í Færeyjum, hvað þá með jafn afgerandi hætti og raun bar vitni.
Guðjón er búinn að skrifa undir tveggja ára samning við félagið.
„Vit ynskja Guðjóni Þórðarsyni hjartaliga vælkomnum til Runavíkar, og vónandi fáa vit nógvar góðar løtur saman við Løkin og kring landið," segir meðal annars í yfirlýsingu frá félaginu.
„Saman standa vit sterk!"