Maggý til FH (Staðfest) - Erna Guðný gerir nýjan samning

Maggý í leik með HK/Víking.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Erna Guðný spilar með FH næstu tvö tímabil.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Maggý í leik með HK/Víking.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Maggý þekkir til hjá FH en hún spilaði fyrst með liðinu árið 2012 áður hún fór til Þróttar og tók eitt tímabil með þeim. Tímabilin 2015 og 2016 spilaði hún með FH. Maggý skrifar undir tveggja ára samning við Hafnarfjarðaliðið.
Erna Guðrún Magnúsdóttir sem hefur allan sinn feril leikið með FH hefur skrifað undir tveggja ára framlengingu á sínum samning.
Erna spilaði 15 leiki í Pepsi deildinni í sumar en alls hefur hún leikið 86 leiki fyrir félagið og skorað í þeim fjögur mörk. Hún er fædd árið 1997.
FH féll úr Pepsideildinni í sumar og spilar því í Inkassodeildinni á næstu leiktíð.
Maggý Lárentsínusdóttir skrifaði í dag undir tveggja ára samning við FH.Maggý er uppalin í FH en hefur spilað með HK/Víkingi síðustu tvö keppnistímabil. Hún á að baki rúmlega 50 leiki í meistaraflokki og það er okkur mikið gleðiefni að fá Maggý aftur í FH. #ViðerumFH #fotboltinet pic.twitter.com/a0hL934sT7
— FHingar.net (@fhingar) November 2, 2018
Erna Guðrún Magnúsdóttir skrifaði í dag undir nýjan tveggja ára samning við FH. Erna Guðrún á að baki rúmlega 60 leiki í efstu deild og samtals rúmlega 80 leiki í meistaraflokki. #ViðerumFH #fotboltinet pic.twitter.com/VNE5dyiG3S
— FHingar.net (@fhingar) November 2, 2018

Erna Guðný spilar með FH næstu tvö tímabil.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.
