Fotbolti.net
03.11.19 - 16:30
Ívan Guðjón Baldursson

Myndband: Balotelli gekk af velli útaf kynþáttaníð

Myndband: Balotelli gekk af velli útaf kynþáttaníð
Canon

Mynd: Getty Images

Mario Balotelli var í liði Brescia sem tapaði fyrir Verona í nýliðaslag ítölsku deildarinnar í dag.
Verona komst tveimur mörkum yfir og minnkaði Balotelli muninn með mögnuðu marki á lokamínútunum, en fyrr í leiknum labbaði hann af velli vegna ótrúlega mikils kynþáttaníðs sem heyrðist úr stúkunni.

Heimamenn í Verona eru mikið í því að gera apahljóð þegar svartir menn spila gegn þeim enda hefur það aldrei bitnað á þeim þar sem ekki er tekið á svona málum í ítalska boltanum.

Hér fyrir neðan má sjá myndband frá því þegar apahljóðin voru sem háværust og Balotelli gekk af velli.



Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.