03.12.12 - 17:30
Magnús Már Einarsson
Ernesto Valverde tekur við Valencia (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Ernesto Valverde hefur verið ráðinn þjálfari Valencia en hann hefur samið við félagið út tímabilið.
Valverde tekur við stjórnartaumunum af Mauricio Pellegrino sem var rekinn á laugardagskvöld eftir 5-2 tap gegn Real Sociedad á heimavelli.
Valverde tekur við stjórnartaumunum af Mauricio Pellegrino sem var rekinn á laugardagskvöld eftir 5-2 tap gegn Real Sociedad á heimavelli.
Valverde hefur mikla reynslu á Spáni því hann hefur stýrt Athletic BIlbao, Espanyol og Villarreal. Þá hefur hann einnig þjálfað Olympiakos í Grikklandi.
Valencia er í ellefta sæti í spænsk úrvalsdeildinni en gengi liðsins hefur verið talsvert undir væntingum á tímabilinu.
Valencia er í ellefta sæti í spænsk úrvalsdeildinni en gengi liðsins hefur verið talsvert undir væntingum á tímabilinu.
Heimild: Sky
