Fotbolti.net
03.12.12 - 19:58
Elvar Geir Magnússon

Matti Vill búinn að semja við Start til 2014 (Staðfest)

Matti Vill búinn að semja við Start til 2014 (Staðfest)
Canon

Mynd: Start

Matthías Vilhjálmsson hefur skrifað undir samning við Start til 2014 en hann tilkynnti þetta á Facebook-síðu sinni.
„Stoltur af því og þá sérstaklega að hafa framlengt við FH í fyrra svo að þeir fengu e-d fyrir sinn snúð ! Ævinlega þakklátur fyrir það sem FH hefur gefið mér!\" skrifaði Matthías.

Hann var hjá norska liðinu á lánssamningi frá FH og lék lykilhlutverk þegar það komst upp í norsku úrvalsdeildina.

Nú er ljóst að hann verður áfram í herbúðum félagsins.

Guðmundur Kristjánsson var einnig hjá Start en hann var lánaður frá Breiðabliki. Líklegt er að hann skrifi bráðlega undir samning við Start líkt og Matthías.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.