Fotbolti.net
03.12.18 - 12:34
Elvar Geir Magnússon

England heldur EM kvenna 2021 (Staðfest)

Úrslitaleikur EM kvenna verður á Wembley.

Úrslitaleikur EM kvenna verður á Wembley.

Canon

Mynd: Getty Images

Kvennaboltinn
England verður gestgjafi lokakeppni Evrópumóts kvenna 2021 en þetta var staðfest í dag. England var í raun eina landið sem sótti um að halda mótið svo ákvörðunin var ekki erfið.

Úrslitaleikurinn verður á Wembley en meðal annarra leikvanga sem verða notaðir eru heimavellir Brighton, Brentford, Rotherham og Sheffield United.
Þann 22. febrúar 2019 verður dregið í riðla í undankeppni EM kvenna en hún fer fram frá ágúst 2019 til september 2020. Umspilsleikir verða í október 2020.

EM á Englandi verður annað Evrópumótið í kvennaflokki eftir að þátttökuþjóðum var fjölgað í sextán. Holland er ríkjandi Evrópumeistari.

Þá tilkynnti UEFA í dag að Ungverjaland og Slóvenía muni halda lokakeppni EM U21 landsliða 2021 í sameiningu. Þá var staðfest að undanúrslit og úrslit Þjóðadeildarinnar á næsta ári fara fram í Portúgal.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.