Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 03. desember 2020 17:16
Elvar Geir Magnússon
Ljóst hvaða lið mætast í undanúrslitum Þjóðadeildarinnar
Mynd: Getty Images
Ítalía mætir Spáni og Belgía leikur gegn Frakklandi í undanúrslitum Þjóðadeildarinnar á næsta ári. Dregið var í dag.

Þau landslið sem unnu riðla sína í A-deild Þjóðadeildarinnar leika í úrslitakeppninni en leikirnir verða á Ítalíu í október á næsta ári.

Leikið verður á San Siro í Mílanó og á Juventus vellinum í Tórínó.

Úrslitaleikurinn verður á San Siro en leikurinn um þriðja sætið á Juventus vellinum.

Portúgal vann fyrstu Þjóðadeildina en þá var úrslitakeppnin í Portúgal sumarið 2019.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner