lau 03. desember 2022 15:12
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Tokic í Ægi (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hrvoje Tokic er genginn til liðs við Ægi og leikur með liðinu í 2. deild næsta sumar.


Þessi 32 ára gamli Króati hefur leikið á íslandi frá árinu 2015 en hann kom fyrst hingað til lands til að spila með Víkingi Ólafsvík. Hann gekk síðan til liðs við Breiðablik og nú síðast með Selfossi.

Hann rifti samningnum sínum við Selfoss í október en hann átti frábæran feril þar. Hann 93 leiki fyrir félagið og skoraði í þeim 90 mörk.

„Við bjóðum Hrvoje Tokic hjartanlega velkomin í Ægi og hlökkum til að byggja upp sterkt lið fyrir næsta tímabil í 2.deildinni," segir í tilkynningu frá Ægi.


Athugasemdir
banner
banner
banner