04.01.13 - 12:00
Sebastían Sævarsson Meyer
Demba Ba orðinn leikmaður Chelsea (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Demba Ba er genginn til liðs við Chelsea frá Newcastle, en þetta var staðfest nú rétt í þessu.
Eftir að hafa staðist læknisskoðun í gærkvöldi, skrifaði senegalski sóknarmaðurinn undir þriggja og hálfs árs samning við Evrópumeistarana.

Vegna klásúlu í samningi Ba hjá Newcastle greiðir Chelsea aðeins 7,5 milljónir punda fyrir þjónustu hans. Hann verður fyrsti senegalski leikmaðurinn til að spila með Chelsea.
Með komu hans til Chelsea mun hann minnka álagið á Fernando Torres í sókninni sem hefur verið í byrjunarliðinu í öllum leikjum liðsins í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu.
Ba hefur látið mikið af sér kveða síðan hann kom í enska boltann í byrjun árs 2011. Þá gekk hann til liðs við West Ham frá Hoffenheim og skoraði 7 mörk í 12 deildarleikjum, en það kom þó ekki í veg fyrir að liðið féll niður um deild.
Ba mátti þá yfirgefa West Ham á frjálsri sölu og skrifaði hann undir hjá Newcastle sumarið 2011. Hann skoraði 16 mörk á síðasta tímabili og þegar núverandi tímabil er hálfnað er hann meðal markahæstu leikmanna í ensku úrvalsdeildinni með 13 mörk.
Nú hefur Ba tekið næsta skref á ferli sínum og gæti spilað sinn fyrsta leik fyrir Chelsea strax á morgun þegar liðið mætir Southampton í enska bikarnum. Hjá Chelsea mun hann leika í keppnistreyju númer 29.