Fotbolti.net
04.01.13 - 09:24
Hafliði Breiðfjörð

Joe Cole til West Ham (Staðfest)

Joe Cole í leik með West Ham árið 2002.

Joe Cole í leik með West Ham árið 2002.

Canon

Mynd: Getty Images

,,Cole er kominn heim,\" er fyrirsögnin á heimasíðu West Ham United þessa stundina en þar er staðfest að félagið hafi keypt Joe Cole frá Liverpool og gert 18 mánaða samning við leikmanninnn. Á vef Liverpool er staðfest að leikmaðurinn fari frítt frá félaginu.
Cole sem hefur leikið 56 landsleiki fyrir England fær treyjunúmerið 26 hjá West Ham en hann er að snúa aftur til félagsins sem hann lék fyrst með á árunum 1998 - 2003. Hann vann FA bikar unglingaliða með West Ham árið 1999 og var valinn West Ham maður ársins 2003.

,,Þetta eru frábær skipti fyrir mig,\" sagði Cole sem er 31 árs gamall á vef West Ham í dag. ,,Að snúa aftur hingað rifjar upp allar minningarnar um vellina sem ég lærði að spila á. Hérna lærði ég allt og ég er ánægður með að fá annað tækifæri til að vera hérna. Ég hef alltaf elskað West Ham og vona að ég geti fært félaginu fleiri góðar minningar.\"

,,Tímasetningin var rétt fyrir mig til að koma til baka og ég er ánægður. Ég kem aftur til London og er ánægður meða ð vera hérna, hér vil ég vera og ég vil hafa áhrif. Staðurinn hefur ekki breyst mikið við fyrstu sín, en ég tel að Sam (Allardyce stjóri liðsins) hafi unnið frábær starf með liðið.\"

,,Fyrir nokkrum árum var liðið í slæmri stöðu og Sam hefur gert frábæra hluti. Þetta verður alltaf West Ham og sagan verður alltaf hérna og hvert sem ég fer um heiminnn elskar fólk West Ham. Hvar sem ég kem man fólk alltaf eftir að ég hafi byrjað hérna.\"


,,Sam þurfti ekkert að selja mér félagið. Ég var í 18 mánuði hjá Liverpool þar sem ég spilaði ekki mikinn fótbolta og Sam vill að ég spili. Ég þarf leiki til að komast í mitt besta form, en ég vil spila leiki og koma hingað að hjálpa liðinu. \"

Síðast þegar Cole var í West Ham lék hann með gríðarlega sterkum leikmönnum eins og Paolo Di Canio, Michael Carrick, Frank Lampard, Jermain Defoe og Trevor Sinclair og fleirum.

Cole lék 42 leiki fyrir Liverpool og skoraði í þeim fimm mörk. Síðasta markið kom gegn West Ham í desember.

Heimild: Vefur West Ham | Vefur Liverpool

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.