04.01.13 - 16:12
Magnús Már Einarsson
Lewis Holtby til Tottenham í sumar (Staðfest)
Meiri samkeppni fyrir Gylfa

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images

Tottenham hefur náð samkomulagi við þýska miðjumanninn Lewis Holtby en hann mun ganga til liðs við félagið í sumar.
Holtby, sem er 22 ára, er á mála hjá Schalke en samningur hans þar rennur út í sumar.

Holtby hefur leikið með Schalke frá því árið 2009 og vakið athygli fyrir góða frammistöðu.
Samtals hefur hann skorað ellefu mörk í 75 leikjum með Schalke en Holtby á einnig þrjá landsleiki að baki með þýska landsliðinu.
Koma hans til Tottenham þýðir að Gylfi Þór Sigurðsson mun fá ennþá meiri samkeppni um sæti í liðinu.

Heimild: Heimasíða Tottenham