04.01.13 - 15:18
Magnús Már Einarsson
Marouane Chamakh til West Ham á láni (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
West Ham hefur fengið framherjann Marouane Chamakh á láni frá Arsenal út tímabilið.
Þessi 28 ára gamli leikmaður hefur ekki náð að festa sig í sessi hjá Arsenal síðan hann kom til félagsins frá Bordeaux árið 2010.

Á þessu tímabili hefur Chamakh ekkert komið við sögu en hann er nú farinn til West Ham sem hefur verið í leit að framherja.
Andy Carroll er frá keppni vegna meiðsla og þar sem Modibo Maiga er á leið á Afríkumótið vildi Sam Allardyce styrkja sóknarlínu sína.
Chamakh er annar leikmaðurinn sem West Ham fær í sínar raðir í dag en í morgun kom Joe Cole til félagsins frá Liverpool.

Heimild: BBC