04.01.13 - 11:00
Magnús Már Einarsson
Mathieu Debuchy til Newcastle (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Newcastle hefur keypt franska hægri bakvörðinn Mathieu Debuchy frá Lille en kaupverðið hefur ekki verið gefið upp.
Þessi 27 ára gamli franski landsliðsmaður skrifaði undir fimm og hálfs árs samning við Newcastle en hann mun leika í treyju númer 26 hjá félaginu.

Debuchy hefur leikið allan sinn feril með Lille en hjá Newcastle á hann að taka hægri bakvarðarstöðuna af Danny Simpson.
Newcastle hafði mikinn áhuga á Debuchy síðastliðið sumar en félagið hefur nú loks náð að krækja í leikmanninn.
,,Eftir mörg frábær ár hjá Lille taldi ég að núna væri ég tilbúinn í nýja áskorun og ég get ekki beðið eftir að spila með svona stóru félagi í bestu deild í heimi,\" sagði Debuchy.
,,Ég vonast til að koma með eitthvað ferskt inn í liðið til að hjálpa okkur að enda eins ofarlega og hægt er í úrvalsdeildinni á þessu tímabili.\"

Heimild: Heimasíða Newcastle