Fotbolti.net
04.01.13 - 11:06
Magnús Már Einarsson

Rasmus Christiansen til Ull/Kisa (Staðfest)

Rasmus Christiansen til Ull/Kisa (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Rasmus Christiansen, varnarmaður ÍBV, hefur gengið til liðs við Ull/Kisa í Noregi en hann hefur skrifað undir tveggja ára samning við félagið sem leikur í næstefstu deild.
Rasmus hafði lýst því yfir síðastliðið haust að hann ætlaði að reyna fyrir sér annars staðar en á Íslandi.

Nokkur íslensk félög höfðu þó áhuga á að fá Rasmus en hann hafnaði þeim sem og tilboði frá sænska félaginu Brage og danska félaginu Vestsjælland.

,,Rasmus er leiðtogi sem mun klárlega styrkja miðvarðarstöðuna hjá okkur,\" sagði Roar Johansen þjálfari Ull/Kisa en hann þjálfaði áður Sarpsborg sem Guðmundur Þórarinnsson og Haraldur Björnsson leika með.

Rasmus er 23 ára gamall en hann var fyrirliði ÍBV á síðasta tímabili. Rasmus kom til ÍBV árið 2010 og lék samtals 72 deildar og bikarleiki með Eyjamönnum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.