Fotbolti.net
04.01.13 - 12:25
Magnús Már Einarsson

Tal Ben Haim til QPR (Staðfest)

Tal Ben Haim til QPR (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Queens Park Rangers hefur fengið varnarmanninn Tal Ben Haim til liðs við sig. Ben Haim hefur æft með QPR undanfarnar sex vikur og hann hefur nú gert samning sem gildir út tímabilið.
Ben Haim hefur verið án félags síðan hann yfirgaf Portsmouth síðastliðið sumar en hann hefur einnig leikið með Bolton, Manchester City, Chelsea og West Ham á Englandi.

,,Tal er frábær atvinnumaður með mikla reynslu og ég vonast til þess að hann verði góð viðbót við hópinn,\" sagði Harry Redknapp stjóri QPR.

,,Hugarfarið hans er frábært og sú staðreynd að hann getur spilað í öllum stöðum í vörninni er auðvitað bónus fyrir okkur.\"

,,Hann vill bara spila. Hann er ekki hér út af peningnum eða eitthvað slíkt. Hann vill bara gera sitt besta fyrir félagið.\"

Heimild: Heimasíða QPR

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.