04.01.13 - 14:06
Elvar Geir Magnússon
Tommaso Rocchi í Inter (Staðfest)
Tommaso Rocchi, reynslubolti Lazio, hefur söðlað um og gengið í raðir Inter. Síðarnefnda félagið tilkynnti þetta á heimasíðu sinni í morgun. Rocchi er 35 ára framherji sem hefur lítið komið við sögu í ítölsku A-deildinni á þessu tímabili.
Talið er að hann hafi skrifað undir samning við Inter út tímabilið en þessi fyrrum fyrirliði Lazio er hugsaður sem varaskeifa fyrir sóknarmenn Inter.


Mynd: Getty Images
