Fotbolti.net
04.01.17 - 14:57
Magnús Már Einarsson

Dagur Dan til Gent (Staðfest)

Dagur Dan á æfingu hjá Gent í október.

Dagur Dan á æfingu hjá Gent í október.

Canon

Mynd: Kristján Bernburg

Dagur Dan Þórhallsson, leikmaður Hauka, hefur gengið til liðs við KAA Gent í Belgíu.

Hinn 16 ára gamli Dagur fór til Gent á reynslu í október og hann hefur nú gert tveggja og hálfs árs samning við félagið.

Umboðsskrifsstofan Total Football greinir frá þessu á Twitter.
Síðastliðið sumar spilaði Dagur sína fyrstu leiki með meistaraflokki Hauka en hann kom við sögu í sex leikjum í Inkasso-deildinni.

Dagur er fæddur árið 2000 en hann var því að ganga núna í haust upp í 2. flokk.

Þórhallur Dan Jóhannsson, fyrrum leikmaður Fylkis, Fram og Hauka og núverandi þjálfari Gróttu, er faðir Dags.

Dagur Dan Thorhallsson (2000) from Haukar has signed a 2 1/2 year contract with KAA Gent. Congrats! ⚽🇮🇸👊 #TeamTotalFootball pic.twitter.com/GnmqZowOj3

— Total Football (@totalfl) January 4, 2017

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.