Fotbolti.net
04.02.17 - 13:21
Arnar Geir Halldórsson

Mexíkósk landsliðskona í Val (Staðfest)

Anisa Raquel Guajardo í leik með Melbourne City

Anisa Raquel Guajardo í leik með Melbourne City

Canon

Mynd: Getty Images

Kvennaboltinn
Mexíkóska landsliðskonan Anisa Raquel Guajardo er gengin til liðs við Pepsi-deildarlið Vals.
Anisa er sóknarmaður sem á 13 landsleiki að baki fyrir Mexíkó og hefur skorað fjögur mörk í þeim. Síðast lék hún fyrir Melbourne City í Ástralíu.

Hún er 26 ára gömul og er væntanleg til landsins þann 1.mars næstkomandi.

Þetta er fjölhæfur sóknarsinnaður leikmaður sem getur spilað í öllum fremstu stöðum vallarins. Hún er flinkur leikmaður með mikinn hraða, sterk maður á mann og með gott auga fyrir spili. Við vonumst að sjálfsögðu til þess að hún komi til með að styrkja frábæran hóp Vals næsta sumar,\" segir Úlfur Blandon, þjálfari Vals, á heimasíðu félagsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.