04.02.18 - 19:46
Ívan Guðjón Baldursson
Klopp: Myndi fá stærstu sekt knattspyrnusögunnar

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Jurgen Klopp hefur ekki farið leynt með óánægju sína með dómgæsluna í 2-2 jafntefli Liverpool gegn Tottenham.
Klopp var brjálaður að leikslokum og hraunaði yfir dómarana, sem dæmdu tvær vítaspyrnur Tottenham í hag á síðustu tíu mínútunum.

Klopp ásakaði Jon Moss um að vilja vera miðpunktur athyglinnar en segist vera búinn að halda aftur að sér fyrir framan myndavélarnar.
„Ef ég segði það sem ég er að hugsa þá myndi ég fá stærstu sekt knattspyrnusögunnar,\" sagði Klopp.
Liverpool er í þriðja sæti eftir jafnteflið, einu stigi fyrir ofan Chelsea og tveimur fyrir ofan Tottenham.