Fotbolti.net
04.02.18 - 14:52
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Zoran Plazonic í Vestra (Staðfest) - Ondo og fleiri farnir

Zoran Plazonić.

Zoran Plazonić.

Canon

Mynd: Vestri

Vestri hefur gert samning við Zoran Plazonić, miðjumann frá Króatíu að því er segir á heimasíðu félagsins.

„Um þar síðustu helgi spilaði Zoran Plazonić tvo leiki með Vestra og stóð sig með miklum ágætum, í framhaldi af þeim leikjum var Zoran boðið samning sem hann samþykkti nú rétt eftir helgi,\" segir í frétt sem Vestri birti hjá sér á þessum sunnudegi.
Zoran hóf feril sinn hjá NK Mosor í Króatíu árið 2007.

Til gamans má geta að Zoran varð bikarmeistari í Bosníu og Hersegóvínu á síðasta ári með þáverandi liði sínu, NK Siroki Brijeg.

Einnig bendir Vestri á það í frétt sinni að Aurelien Naurest, Kevin Alson Schmidt, Deyan Minev, Saul Halpin, Gilles Mbang Ondo og Mehdi Hadraoui hafa yfirgefið félagið.
Ondo hefur yfirgefið herbúðir Vestra.

Ondo hefur yfirgefið herbúðir Vestra.

Canon

Mynd: Vestri

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.