Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 04. febrúar 2019 21:33
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Öryggisvörðurinn maður leiksins
Mynd: Twitter
Shrewsbury Town tapaði 3-0 gegn Luton í ensku C-deildinni á laugardag.

Maður leiksins hjá Shrewsbury var ekki einn af leikmönnum liðsins, heldur var það öryggisvörður á vellinum.

Öryggisvörðurinn hjálpaði fötluðum stuðningsmanni Luton að fagna með sínum mönnum. Stuðningsmaðurinn var í hjólastól, en öryggisvörðurinn hjálpaði stuðningsmanninum úr hjólastólnum svo hann gæti fagnað mörkunum. Hann hjálpaði honum svo aftur í hjólastólinn.

Loviu Ngozulu heitir öryggisvörðurinn en stuðningsmaðurinn heitir George Barnard og ferðast út um allt til að styðja Luton. Loviu hefur fengið mikið hrós fyrir sinn verknað.



Athugasemdir
banner
banner