mið 04. mars 2020 09:30
Magnús Már Einarsson
Mourinho: Vita ekki hvernig Troy lítur út
Troy Parrott lítur svona út.
Troy Parrott lítur svona út.
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho, stjóri Tottenham, segir að stuðningsmenn liðsins sem kalla eftir því að Troy Parrott fái að spila viti ekki einu sinni hvernig leikmaðurinn lítur út.

Hinn 18 ára gamli Parrott hefur skorað talsvert fyrir yngri lið Tottenham og stuðningsmenn liðsins vilja sjá hann fá tækifæri í fjarveru Harry Kane og Heung-Min Son.

Mourinho er hins vegar á því að Parrott sé ekki tilbúinn í alvöru hlutverk í liði Tottenham ennþá.

„Þetta er heimur þar sem mikið af fólki veit ekki einu sinni hvort Troy er með stutt eða sítt hár. Eða ljóst eða dökkt. Þau vita það ekki en segja samt Troy, Troy, Troy, Troy, hann á að spila," sagði Mourinho.

„Það var maður fyrir aftan mig á bekknum um daginn sem sagði: 'Spilaðu Troy, spilaðu Troy'. Ég held að hann þekki ekki Troy."
Athugasemdir
banner
banner