Fotbolti.net
03.10.26 - 17:17
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Zidane hrósar Jacquet - „Búinn að segja það fjórum sinnum"

Zidane hrósar Jacquet - „Búinn að segja það fjórum sinnum"
Canon

Mynd: EPA

Jeremy Jacquet, varnarmaður Liverpool, hefur vakið athygli fyrir frammistöðu sína í byrjun tímabilsins.

Hann gekk til liðs við Liverpool frá Rennes í sumar og náði aðeins einum æfingaleik fyrir tímabilið vegna meiðsla. Hann hefur byrjað alla leiki liðsins í úrvalsdeildinni og verið með bestu mönnum liðsins.
Hann var valinn í franska landsliðið og hefur spilað vel í síðustu tveimur leikjum. Zinedine Zidane, landsliðsþjálfari Frakka, er mjög hrifinn af honum.

„Hann er góður, mjög, mjög góður. Hann var ekki hræddur við að fara langt út. Mjög góður í einvígum. Hann var, enn eina ferðina, mjög góður. Ég er búinn að segja það fjórum sinnum," sagði Zidane.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.