Timo Werner, sóknarmaður Chelsea, hefur ekki staðið undir væntingum síðan hann var keyptur á 53 milljónir punda frá RB Leipzig síðasta sumar.
Werner fór í gegnum fjórtán úrvalsdeildarleiki frá nóvember til febrúar og hefur aðeins skorað fimm mörk í úrvalsdeildinni á tímabilinu.
Werner segist þó sannfærður um að mörkin eigi eftir að koma, hann hafi aldrei áður upplifað svona markaþurrð.

„Þetta var erfitt fyrir mig því ég vildi svo mikið hjálpa liðinu," segir Werner.
„Ég vil skora, það er í mínu eðli. Ég er sóknarmaður og hef aldrei upplifað svona kafla áður á mínum ferli. Þú getur alltaf lært af vondri stöðu. Ég lærði að treysta á sjálfan mig og gefa allt á vellinum, ekki bara hugsa um mörk heldur berjast fyrir liðið."
„Núna vona ég að þessi kafli sé að baki og ég skori fleiri mörk áður en tímabilið er að baki."
Athugasemdir