04.04.19 - 12:45
Arnar Daði Arnarsson
Rut og Agnes framlengja við Þór/KA (Staðfest)

Rut í leik með Þór/KA síðasta sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Rut í leik með Þór/KA síðasta sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þær Rut Matthíasdóttir og Agnes Birta Stefánsdóttir hafa framlengt samning sinn við Þór/KA til tveggja ára.
Rut Matthíasdóttir er varnarmaður og verður 23 ára gömul síðar á árinu á að baki 17 leiki með Þór/KA í deild og bikar. Hún hefur einnig leikið þrjá Evrópuleiki með Þór/KA.
Rut lék sjö leiki með Þór/KA síðasta sumar.
Agnes Birta Stefánsdóttir er 22 ára gömul og spilar sem miðjumaður. Agnes á að baki 23 leiki í deild og bikar með meistaraflokki þar af eru 12 leikir með Hömrunum en hún lék með því liðið 2018 sem lánsmaður frá Þór/KA.
Það var Nói Björnsson stjórnarmaður í Þór/KA sem undirritaði samningana fyrir hönd félagsins.
Óskum þeim Rut og Agnesi Birtu til hamingju með nýju samningana.