Fotbolti.net
04.04.22 - 16:19
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Benedikt Warén í ÍA (Staðfest)

Benedikt Warén í ÍA (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍA hefur fengið liðsstyrk fyrir komandi átök í Bestu deildinni því Benedikt V. Warén er genginn í raðir félagsins á láni frá Breiðabliki.

Benó kemur á láni út tímabilið en hann er miðjumaður sem getur einnig spilað á kantinum.
Hann hefur alls leikið 31 leik fyrir meistaraflokk Breiðabliks og skorað í þeim 5 mörk.

Benó var á láni hjá Vestra á síðasta ári þar sem Jón Þór var þjálfari. Hann skoraði fjögur mörk í tólf leikjum í Lengjudeildinni.

Hann er tvítugur og skrifaði í vetur undir nýjan þriggja ára samning við Breiðablik.

„Það er mikið fagnaðarefni að fá Benó til liðs við ÍA og verður spennandi að sjá hann í sumar.

Við bjóðum Benó kærlega velkominn til ÍA,"
segir í færslu ÍA.

Síðar í dag birtist viðtal við Benedikt hér á Fótbolta.net.

Sjá einnig:
„Ef Benedikt verður lánaður munum við klárlega sækjast eftir hans kröftum"
Nýtur þess að vera fyrir vestan: Hef ekki hugsað lengra en það
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.