Fotbolti.net
08.03.22 - 16:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

„Ef Benedikt verður lánaður munum við klárlega sækjast eftir hans kröftum"

Benedikt Warén

Benedikt Warén

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir

Lengjudeildin
Nú eru rétt um tveir mánuðir í það að Lengjudeildin hefst. Vestri réði nýjan þjálfara, Gunnar Heiðar Þorvaldsson, á sunnudag og þá er hægt að rýna aðeins í leikmannahóp liðsins.

Sjá einnig:
„Ekki okkur að þakka að Gunnar Heiðar er þjálfari Vestra í dag"

Samúel Samúelsson ræddi við Fótbolta.net í dag og var hann spurður út í sína sýn á hópinn.
Hvernig horfir leikmannahópurinn ykkar við þér á þessum tímapunkti? Þarf að taka inn leikmenn til að stækka hópinn?

„Ég vil meina að leikmannahópur Vestra, þegar allir eru komnir, sé feykisterkur. En það eru líka margir aðrir hópar í þessari deild. Við eigum ennþá eftir að fá [Nikolaj] Madsen sem kemur á laugardag, Nacho [Gil] kemur á morgun og við erum að bíða eftir atvinnu- og dvalarleyfi fyrir Silas. [Daniel] Badu og Chechu [Meneses] voru með Covid í síðustu ferð og Martin [Montipo] er að komast af stað eftir meiðsli."

„Við erum líka með unga stráka í hópnum, sérstaklega hægt að nefna Guðmund Pál [Einarsson] og Guðmund Arnar [Svavarsson] sem hafa verið að standa sig fáránlega vel."

„Við erum að fá Friðrik [Þóri Hjaltason] aftur til baka eftir að hann sleit hásin, Tufa [Vladimir Tufegdzic] meiddist í júlí í fyrra og er að komast af stað aftur. Við erum með flottan hóp þegar allir eru klárir."


Hvernig er staðan á Silas og dvalarleyfinu?

„Hann þarf að fá atvinnu- og dvalarleyfi til þess að fá leikheimild. Þetta tekur allt tíma, hann er Simbabve og þarf að græja hina og þessa pappír, fá stimpla, sakavottorð - talsvert ferli. Það hjálpar ekki til að útlendingastofnun getur tekið alltof langan tíma í þetta."

Í fyrra fenguð þið Benedikt Warén frá Breiðabliki í glugganum. Eruð þið að horfa í einhvern svipaðan liðsstyrk á láni úr efstu deild fyrir þetta tímabil?

„Ef að Benedikt Warén verður lánaður frá Breiðabliki þá munum við klárlega sækjast eftir hans kröftum. Það er alveg klárt, Benó stóð sig feyki vel hjá okkur í fyrra. En ég vona samt innilega að hann fái hlutverk í liði Breiðabliks og standi sig þar. En ef ekki þá höfum við klárlega áhuga."

Talandi um Breiðablik, það var umræða í Dr. Football í dag að Blikar hefðu áhuga á því að fá Kundai Benyu í sínar raðir. Er einhver þróun á þeim málum?

Sjá einnig:
Leikmenn Vestra æfa með Breiðabliki og Val

„Eins og ég sagði við þig síðast þá hef ég ekki fengið nein tilboð frá Breiðabliki í leikmanninn. Ég held að þeir sjái alveg að hann er góður í fótbolta en ég geri ekki ráð fyrir öðru en að hann verði leikmaður Vestra í sumar," sagði Sammi.

Þetta var annar hluti af þremur af spjallinu við Samma.
Friðrik Þórir

Friðrik Þórir

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kundai Benyu

Kundai Benyu

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.