Arsenal er úr leik í enska bikarnum eftir tap gegn Southampton í 8-liða úrslitum í kvöld.
Liðið hefur átt mjög gott tímabil og er á toppnum í úrvalsdeildinni og komið í 8-liða úrslit Meistaradeildarinnar. Liðið tapaði hins vegar í úrslitum deildabikarsins á dögunum gegn Man City.
Liðið hefur átt mjög gott tímabil og er á toppnum í úrvalsdeildinni og komið í 8-liða úrslit Meistaradeildarinnar. Liðið tapaði hins vegar í úrslitum deildabikarsins á dögunum gegn Man City.
„Við verðum að óska Southampton til hamingju. Þeir eru að fara á Wembley en ekki við. Við tókumst ekki nægilega vel á við löngu boltana. Við létum þá bara fara í gegnum okkur, erfitt að útskýra það en hrós á þá," sagði Arteta.
„Maður verður að komast í gegnum svona kafla. Sumir eru erfiðir af ýmsum ástæðum. Tvö mjög svekkjandi úrslit í röð og við verðum að rífa okkur upp. Nú verðum við að sýna hvað í okkur býr og við gerum það á vellinum, ekki hér."
Gabriel þurfti að fara af velli vegna meiðsla og þá voru Bukayo Saka og Declan Rice ekki með í kvöld. Arteta var vongóður um að endurheimta leikmenn fyrir fyrri leikinn gegn Sporting á útivelli í Meistaradeildinni á þriðjudaginn.




