Fotbolti.net
04.04.26 - 13:07
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Byrjunarlið Þórs og FH: Byrjar gegn liðinu sem hann er á láni frá

Bjarni Guðjón byrjar gegn FH.

Bjarni Guðjón byrjar gegn FH.

Canon

Mynd: Ármann Hinrik/Akureyri.net

Mjólkurbikarinn
Klukkan 14:00 hefst leikur Þórs og FH í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins. Spilað verður í Boganum á Akureyri.

Búið er að opinbera byrjunarliðin og vekur athygli að Bjarni Guðjón Brynjólfsson er í liði Þórsara en hann er lánsmaður frá FH. Atli Sigurjónsson er þá orðinn klár en hann hefur misst af síðustu tveimur leikjum Þórsara. Norski framherjinn Sebastian Haugland spilar sinn fyrsta leik og ganverski kantmaðurinn Isaac Atanga er á bekknum.
Lestu um leikinn: Þór 2 - 4 FH
Hjá FH er Ísak Óli Ólafsson með fyrirliðabandið og spilar við hlið Svíans Tobias Carlsson í hjarta varnarinnar. Hinn gríðarlega fljóti Gils Gíslason er í liði FH og með honum framarlega á vellinum eru þeir Kjartan Kári Halldórsson, Arnór Borg Guðjohnsen og Adolf Daði Birgisson.

Ásbjörn Líndal Arnarsson sem fæddur er 2008 er í vinstri bakverðinum hjá Þór og Róbert Hugi Sævarsson sem fæddur er 2010 er á bekknum hjá FH.

Byrjunarlið Þór

Aron Birkir Stefánsson (fyrirliði), Ásbjörn Líndal Arnarsson, Yann Emmanuel Affi, Atli Sigurjónsson, Sebastian Heimvik Haugland, Kristófer Kristjánsson, Bjarni Guðjón Brynjólfsson, Ragnar Óli Ragnarsson, Ágúst Eðvald Hlynsson, Christian Jakobsen, Sigfús Fannar Gunnarsson

Byrjunarlið FH

Jökull Andrésson, Birkir Valur Jónsson, Tobias Carlsson, Grétar Snær Gunnarsson, Kjartan Kári Halldórsson, Adolf Daði Birgisson, Ísak Óli Ólafsson (fyrirliði), Tómas Orri Róbertsson, Gils Gíslason, Baldur Kári Helgason, Arnór Borg Guðjohnsen

Arnór Borg byrjar hjá FH.

Arnór Borg byrjar hjá FH.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Atanga byrjar á bekknum hjá Þór.

Atanga byrjar á bekknum hjá Þór.

Canon

Mynd: Ármann Hinrik/Akureyri.net

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.