Nágrannar í samkeppni um Anderson - Fernandes á óskalista Bayern og PSG - Liverpool ætlar að endurbyggja hópinn
   lau 04. apríl 2026 13:41
Brynjar Ingi Erluson
Enski bikarinn: Man City fór illa með Liverpool
Erling Haaland skoraði þrennu
Erling Haaland skoraði þrennu
Mynd: EPA
Mo Salah átti ömurlegan dag á skrifstofunni
Mo Salah átti ömurlegan dag á skrifstofunni
Mynd: EPA
Manchester City 4 - 0 Liverpool
1-0 Erling Haaland ('39 , víti)
2-0 Erling Haaland ('45 )
3-0 Antoine Semenyo ('50 )
4-0 Erling Haaland ('57 )
4-0 Mohamed Salah ('64 , Misnotað víti)

Manchester City flaug örugglega áfram í undanúrslit enska bikarsins með því að vinna 4-0 stórsigur á erkifjendum sínum í Liverpool á Etihad-leikvanginum í dag.

Liverpool-liðið mætti vel stemmt til leiks, átti góða spilkafla og skapaði sér hættulegri færi til að byrja með.

Mohamed Salah, sem mun kveðja Liverpool eftir tímabilið, fékk besta færi Liverpool er hann slapp í gegn eftir langt spark Giorgi Mamardashvili fram völlinn. Hann hristi af sér Abdukhodir Khusanov, en var of lengi að koma sér í skotstöðu og náði Khusanov að komast inn í skot hans sem fór langt framhjá markinu.

Hugo Ekitike átti þá fínustu tilraun sem hann þrumaði rétt yfir markið stuttu síðar.

Allt hrundi hins vegar á 38. mínútu er Virgil van Dijk, fyrirliði Liverpool, braut á Nico O'Reilly í teignum. Klaufalegt hjá þessum reynda varnarmanni sem fór af miklum ákafa inn í O'Reilly og gat hann lítið kvartað yfir ákvörðun Michael Oliver, dómara leiksins.

Erling Braut Haaland skoraði af miklu öryggi úr spyrnunni og tvöfaldaði hann síðan forystuna með skallamarki eftir fyrirgjöf Antoine Semenyo áður en flautað var til loka fyrri hálfleiks.

Staðan 2-0 í hálfleik fyrir heimamönnum en uppgjöf Liverpool-manna var greinileg.

Það var engin barátta eða andi í liðinu í þeim síðari. Semenyo kom Man City í þriggja marka forystu á 50. mínútu eftir stungusendingu frá Rayan Cherki og afgreiddi Semenyo boltann snyrtilega framhjá Mamardashvili.

Sjö mínútum síðar fullkomnaði Haaland þrennuna úr miðjum teignum eftir sendingu frá O'Reilly.

Liverpool fékk tækifæri til að minnka muninn á 64. mínútu er brotið var á Ekitike í teignum. Salah steig á punktinn en James Trafford sá við honum í markinu.

Afleit frammistaða hjá Salah sem hefur verið langt frá sínu besta á þessari leiktíð.

Man City ekki í vandræðum með að koma sér í undanúrslit bikarsins í áttunda sinn í röð sem er nýtt met en Liverpool er úr leik.

Þetta er stórt áhyggjuefni hjá Liverpool sem mun mæta Paris Saint-Germain næst í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar á miðvikudag.
Slapp
banner