Nágrannar í samkeppni um Anderson - Fernandes á óskalista Bayern og PSG - Liverpool ætlar að endurbyggja hópinn
   lau 04. apríl 2026 11:28
Brynjar Ingi Erluson
Guardiola verður upp í stúku - Fyrrum aðstoðarmaður Klopp á hliðarlínunni
Pep Guardiola og Pep Lijnders
Pep Guardiola og Pep Lijnders
Mynd: EPA
Hollendingurinn Pep Lijnders mun standa á hliðarlínunni hjá Manchester City gegn sínum gömlu félögum í Liverpool í 8-liða úrslitum enska bikarsins á Ethiad í dag.

Pep Guardiola tekur út leikbann vegna uppsafnaðra gulra spjalda og verður því upp í stúku en mun auðvitað finna leiðir til að koma skilaboðum áleiðis.

Lijnders var áður aðstoðarmaður Jürgen Klopp hjá Liverpool en kom inn í teymið hjá Man City á síðasta ári.

Hann eyddi sex árum með Klopp hjá Liverpool áður en hann tók við RB Salzburg í Austurríki. Það ævintýri fór ekki alveg eins og hann hafði ímyndað sér og var hann látinn fara eftir stutta dvöl þar.

Hollendingurinn hafði áður látið þau ummæli falla að það samstarfið með Klopp væri hans síðasta sem aðstoðarþjálfari, en sagði að tækifærið til að vinna með Guardiola væri of gott til að hafna og samdi hann því Man City.

Leikurinn hefst klukkan 11:45 og er í beinni útsendingu á SÝN Sport Viaplay.
Slapp
banner